Fréttir og tilkynningar
Vinaball | 10.05.2012
Minnum á vinaballið á morgun! allir mega koma með tvo vini með sér. Hlökkum sjúklega mikið til að dansa rassgatið af okkur með ykkur. Wúpp wúpp :) Ballið byrjar kl 20:30 og stendur til 23:00
Náttfatanótt | 20.04.2012
Föstudaginn 27. apríl ætlum við að hafa náttfatanótt. Það kostar litlar 1000 kr og fer skráning fram í Holtinu en henni lýkur á fimmtudaginn kl. 17! Endilega komið, skráið ykkur og fáið leyfisbréf :)
Bíóferð | 11.04.2012
Föstudaginn 13. apríl ætlum við að skella okkur í bíó á myndina Battleship. Farið verður í Egilsbíó og byrjar myndin kl. 20:00 og kostar litlar 950 kr. Innifalið í verðinu er miðstærð af popp og kók! Vonumst til að sjá sem flesta :)
Lazertag | 15.02.2012
Lazertag á föstudaginn 17. febrúar.Kostar 1900 kr og þið þurfið að koma með strætómiða sjálf. Innifalið er 2 leikir. Við ætlum að fara í skemmtigarðinn í Smáralind. Þeir sem hafa áhuga á koma með þurfa að skrá sig og borga fyrir fimmtudaginn 16. febrúar.
KV. Holtið
SamFestingurinn | 06.02.2012
Helgina 2. og 3. mars verður SamFestingurinn haldinn í Laugardalshöllinn. sjá meira hér
| 03.02.2012
Í kvöld 3. febrúar verður sameiginlegt ball með Tíunni og Fókus. Ballið er styrktarball fyrir krakkana sem eru að fara í skíðaferðina. Á ballið kostar 500 kr,
það verður haldið í Tíunni og stendur frá kl. 20-23.
| 13.12.2011
Hið árlega jólaball Holtsins og Norðlingaskóla verður haldið fimmtudaginn 15. nóvember í Norðlingaskóla. Ballið byrjar kl. 19:30 og stendur til kl. 23:00. Dj Basic House Effect ætlar að þeyta skífum. Hlökkum til að sjá ykkur öll í jólstuði! :)
Bíó bíó | 13.12.2011
21. des kl. 14:00 ætlum við í bíó á frumsýningu á myndina New Year's Eve. Við erum búin að leigja sal í Egilshöll og krakkar frá Tíunni og Fókus kom líka. Kostar 900 kr og þarf að skrá sig og borga hjá okkur fyrir kl. 16:00 á föstudaginn! Allir að koma með okkur í jólabíó :)