Gjaldskrá frístundaheimilanna

Frístundagjald á frístundaheimilum og frístundaklúbbum (á veturna):

5 dagar í viku kr.10.040
4 dagar í viku kr.  8.185
3 dagar í viku kr.  6.325
2 dagar í viku kr.  4.450
1 dagur í viku kr.  2.590

Ef tvö systkini eða fleiri eru í vistun á frístundaheimilum borgarinnar er veittur 75% afsláttur vegna annars barns en 100% vegna þriðja og fjórða barns af frístundagjaldi, skilyrði er að systkinin hafi sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börnin.

Ef þjónusta er nýtt kl. 8.00-13.30 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 1.500 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 13.30-17.15. Óskað er eftir skráningu á þessa daga sérstaklega á hverjum stað fyrir sig.

Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu:

5 dagar í viku kr. 2.900
4 dagar í viku kr. 2.320
3 dagar í viku kr. 1.740
2 dagar í viku kr. 1.160
1 dagur í viku kr.    580

Gjaldskrá þessi tók gildi 1. febrúar 2011. Ef breyting verður á gjaldskrá verður það tilkynnt greiðanda með minnst mánaðar fyrirvara.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp, eða óskað er eftir breytingum, skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Hægt er að segja upp þjónustunni á Rafrænni Reykjavík og með skriflegri tilkynningu til verkefnastjóra frístundaheimilisins.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í viðkomandi frístundamiðstöð eða hjá þjónustuveri Reykjavíkur í  síma 4111111. Starfsfólk frístundamiðstöva leitast við að sinna hlutverki sínu af kostgæfni en ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara er hægt að senda tölvupóst á fristundaheimili@itr.is








Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit