Fréttir og tilkynningar

Stensl og fatalitun á mánudaginn | Tían 27.01.2012

Allir velkomnir að mæta í Tíuna og stensla eða lita á striga eða föt. Ef þið ætlið að taka þátt þá þurfið þið að koma með striga eða föt.

Hverfaleikameistarar þriðja árið í röð. | Tían 24.01.2012

Félagsmiðstöðin Tían urðu Hverfaleikameistarar þriðja árið í röð og fær hinn eftirsótti bikar að dvelja í Tíunni næsta árið. Unglingarnir í Tíunni stóðu sig mjög vel og eiga þennan sigur svo sannarlega skilið. Myndir koma fljótlega á heimasíðuna.

Hverfaleikarnir í gangi. | Tían 17.01.2012

Þessa vikuna standa yfir hverfaleikar félagsmiðstöðva í Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti. Leikarnir hófust á mánudaginn með fjölmörgum keppnum. Hópur unglinga ferðaðist saman í rútu upp í Norðlingaholt þar sem fyrsti dagurinn af þremur er haldinn. Keppt var í ballskák, borðtennis, fótboltaspili, kökugerð, planka og ljósmyndun. Félagsmiðstöð fær stig eftir því hvaða sæti hún lendir í og eftir fyrsta dag leikanna er Tían með forystu og eru allir voðalega spenntir eftir að hefja leika á miðvikudaginn sem verða haldnir í Fókus í Grafarholti. Sjáið myndirnar frá fyrsta deginum inn á myndasíðunni okkar.

Gleðilegt nýtt ár | Tían 02.01.2012

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir 2011. Félagsmiðstöðin Tían er opinn í dag 2. janúar frá 12:00-16:00 og aftur í kvöld kl. 19:00-22:00. Dagskrá janúar mánuðar kemur bráðlega á heimasíðuna.

Unglingar í Tíunni í jólaskapi | Tían 22.12.2011

Það var jólalegt í strætisvagni nr. 19 í morgun (22. desember) þegar hópur unglinga úr Árbænum voru á leið á Barnaspítala Hringsins með fangið fullt af jólagjöfum. Tilefni ferðarinnar var að færa leikstofu Barnaspítalans jólagjafir sem unglingar í félagsmiðstöðvastarfi Tíunnar höfðu safnað í góðgerðarviku sem nú er nýafstaðin. Það voru margir unglingar sem komu að undirbúningi og skipulagningu þessarar viku og greinilegt að hvorki skorti metnað né áhuga hjá þeim að gera þetta eins flott og eftirminnilegt og möguleiki var. Tveir stærstu viðburðirnir þessa viku voru án efa jólabingóið og góðgerðarballið. Það voru margir listamenn sem gáfu vinnuna sína á ballinu og má þar aðalega nefna Jón Jónsson, Friðrik Dór, Steinda Jr. og Bent. Einnig voru mörg fyrirtæki sem gáfu vinninga í bingóið, t.a.m. var aðalvinningurinn utanlandsferð með Iceland Express. Það safnaðist alls 150.000 kr. sem runnu óskertir í jólagjafakaup. Unglingum í Árbæ langar að þakka öllum þeim fyrirtækjum, listamönnum og ekki síst öllum unglingum og íbúum Árbæjar sem tóku þátt í þessari góðgerðarviku kærlega fyrir og óskum við öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.


Á döfinni


Engir viðburðir fundust.

Félagsmiðstöðvar


Dagskrá
Skíðasvæði Reykjavíkur
10-12 ára
Myndbönd
Samfés
ÍTR
Ung blaðið
Árbæjarskóli




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit