Jólakósýgistinótt í Fókus | Fókus 07.12.2011
Föstudagskvöldið 9. Des verður jólakósý kvöld í fókus og gistinótt í framhaldinu. Mæting er í Fókus kl. 19.00 og þá ætlum við að borða saman, skreyta piparkökur, hlusta á jólalög, horfa á jólamynd og
hafa það kósý og jólast eins og við getum. Við leggjum áherslu á það að kl. 03.00 á að vera komin ró á mannskapinn, svo tilgangurinn er alls ekki að vaka alla nóttina. Ef einhverjir geta ekki fylgt þeirri
reglu munum við hringja heim og biðja foreldra um að sækja viðkomandi. Við vöknum svo kl. 09.00 og hjálpumst að við að ganga frá áður en allir fara heim.
Frekari upplýsingar í 664-7623/ 411-5820.